Brek Shea, leikmaður FC Dallas í MLS-deildinni í Bandaríkjunum hefur hlotið þriggja leikja bann fyrir óíþróttamannlega hegðun.
Shea var þá dæmdur brotlegur í leik gegn Columbus Crew, en aðstoðardómarinn veifaði flagginu og var leikmaðurinn allt annað en sáttur. Hann lyfti þá boltanum upp með fætinum og sparkaði honum í maga aðstoðardómarans.
Hann fékk einungis að líta gula spjaldið fyrir atvikið í leiknum, en núna hefur aganefnd deildarinnar ákveðið að dæma hann í þriggja leikja bann ásamt því að sekta hann, en óljóst er hversu há sektin verður.
Hægt er að sjá myndbandið hér að neðan.




