Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fös 18. maí 2012 10:12
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Rodgers vildi ekki ræða við Liverpool - 12 aðilar koma til greina
Brendan Rodgers, stjóri Swansea, hefur hafnað tilboði um að ræða við Liverpool um að taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá félaginu en þetta segja heimildir Sky.

Kenny Dalglish var rekinn frá Liverpool í vikunni eftir versta tímabil félagsins í deildinni í 18 ár.

Eigendur Liverpool vilja skoða marga kosti áður en nýr stjóri var ráðinn og talið er að tólf nöfn séu á óskalista félagsins.

Í gær fékk Roberto Martinez stjóri Wigan leyfi til að ræða við Liverpool en Rodgers hefur hins vegar ekki áhuga á að ræða við forráðamenn félagsins.

Aðrir stjórar á tólf manna listanum eru meðal annars Pep Guardiola sem er að hætta með Barcelona og Fabio Capello fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga.
Slapp
banner
banner