Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 18. maí 2012 10:18
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Solskjær í viðræðum við Aston Villa
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Norska félagið Molde hefur staðfest að Ole Gunnar Solskjær þjálfari félagsins eigi í viðræðum við Aston Villa.

Hinn 39 ára gamli Solskjær stýrði Molde til sigurs í norsku deildinni í fyrra en hann er núna á leið til Englands í einkaþotu Randy Lerner eiganda Aston Villa.

Aston Villa er í leit að stjóra til að fylla skarð Alex McLeish sem var rekinn á mánudag eftir 11 mánuði við stjórnvölinn.

Solskjær lék með Manchester United við góðan orðstír á sínum tíma en hann þjálfaði varalið félagsins í tvö og hálft ár áður en hann tók við Molde.

Í einkaviðtali við Fótbolta.net í febrúar sagðist Solskjær ekki vera að horfa til þess að taka við félagi á Englandi á næstunni en nú gætu þær áætlanir breyst.
Slapp
banner
banner