Heimild: Heimasíða Bolton
Grétar Rafn Steinsson er einn af tólf leikmönnum sem munu yfirgefa herbúðir Bolton Wanderers þegar samningar þeirra renna út í sumar.
Grétar Rafn staðfesti í samtali við Fótbolta.net fyrr í vikunni að hann væri á förum frá félaginu og Bolton staðfesti þetta einnig í yfirlýsingu í morgun.
Grétar Rafn staðfesti í samtali við Fótbolta.net fyrr í vikunni að hann væri á förum frá félaginu og Bolton staðfesti þetta einnig í yfirlýsingu í morgun.
Bolton féll úr ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi en auk Grétars eru leikmenn eins og Paul Robinson og Ivan Klasnic á förum sem og Nigel Reo-Coker sem ætlar að nýta sér klásúlu í samningi sínum.
Ricardo Garnder er á förum eftir 14 ára dvöl hjá Bolton og þeir Sean Davis, Robbie Blake, Mark Connolly, Tope Obadeyi, Rhys Bennett, Dino Fazlic og Tom Eckersley eru einnig á förum.
Tuncay, Dedryck Boyata og Ryo Miyaichi eru líka farnir frá Bolton eftir að hafa verið á láni hjá félaginu í vetur.
Fyrirliðinn Kevin Davies hefur hins vegar skrifað undir nýjan eins árs samning og þá hefur bakvörðurinn Sam Ricketts framlengt samning sinn til ársins 2014. Bolton á síðan í viðræðum við Jussi Jaaskelainen og Zat Knight um nýja samninga.
Sjá einnig:
Grétar Rafn: Nenni ekki að fara í eitthvað rugl og vera óánægður




