Heimild: BBC
Það er nóg af kjaftasögum í ensku blöðunum í dag og BBC hefur tekið þær helstu saman.
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, ætlar að íhuga að láta Carlos Tevez eða Mario Balotelli fara til Manchester City í skiptum fyrir Zlatan Ibrahimovic. (Manchester Evening News)
Patrick Vieira, fyrrum leikmaður Arsenal, segir að það sé of seint fyrir félagið að gera nýjan samning við Robin van Persie. Hollendingurinn á eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal en hann hefur verið orðaður við Manchester City og Juventus. (Daily Mirror)
Viðræður Van Persie og Arsenal sigldu í strand í gær þrátt fyrir að félagið hafi boðið leikmanninnum 130 þúsund pund í vikulaun og fimm milljónir punda fyrir að skrifa undir nýjan samning. (Daily Mail)
Reading ætlar að reyna að fá Joe Cole til liðs við sig á láni frá Liverpool. Cole, sem er með 70 þúsund pund í vikulaun, var á láni hjá Lille á síðasta tímabili. (Daily Star)
Tottenham ætlar að reyna að fá Arouna Kone frítt í sumar en hann skoraði 15 mörk með Levante á nýliðnu tímabili. (Daily Mirror)
PSG er að skoða Ezequiel Lavezzi framhera Napoli en hann er einnig á óskalista Manchester City. (Talksport)
Luis Suarez, framheri Liverpool, segist hafa áhuga á að spila á Spáni. (Metro)
Younes Belhanda segist vilja vera áfram hjá Montpellier þrátt fyrir áhuga hjá Manchester City og Arsenal. (Talksport)
Steven Fletcher, framherji Wolves, ætlar að hafna tilboði frá Sunderland. (Daily Mail)
Fabio Capello er til í að taka við Chelsea í eitt ár og í kjölfairð gæti Pep Guardiola tekið við stjórnvölunum. (The Sun)
Capello er að skoða tilboð um að taka við landsliði Sameinuðu arabísku Furstadæmanna. (Daily Telegraph)
Steve Kean hefur sannfært eigendur Blackburn um að fá að halda áfram sem knattspyrnustjóri félagsins. (The Indpendent)




