Heimild: Nettavisen
Kristján Gauti Emilsson mun í dag halda til Noregs þar sem hann verður á reynslu hjá Brann fram á sunnudag.
Kristján Gauti, sem er 18 ára gamall framherji, er uppalinn hjá FH en hann lék þrjá leiki í efstu deild áður en hann gekk til liðs við Liverpool í lok árs 2009 og gerði tveggja og hálfs árs samning.
Sá samningur rennur út í sumar og útlit er fyrir að Kristján Gauti muni þá yfirgefa herbúðir Liverpool.
Kristján Gauti hefur leikið með unglingaliði Liverpool í vetur og skorað nokkur mörk með liðinu.
Nokkrir íslenskir leikmenn hafa leikið með Brann undanfarin ár en í dag er Birkir Már Sævarsson á mála hjá félaginu.


