Nú rétt í þessu var dregið í 32-liða úrslit í bikarkeppni KSÍ. Stærsti leikurinn verður á Akranesi þar sem ÍA fær KR í heimsókn.
Keflavík og Grindavík mætast í Suðurnesjaslag og FH og Fylkir mætast í Hafnarfirði. Hér að neðan má sjá dráttinn í heild sinni.
Keflavík og Grindavík mætast í Suðurnesjaslag og FH og Fylkir mætast í Hafnarfirði. Hér að neðan má sjá dráttinn í heild sinni.
32-liða úrslit:
Stjarnan - Grótta
Keflavík - Grindavík
KFS - KB
KF/Þór - Valur
KA - Fjarðabyggð
FH - Fylkir
Breiðablik - BÍ/Bolungarvík
Fram - Haukar
Víkingur Ó. - ÍBV
Augnablik - Höttur
Leiknir R. - Þróttur
Víkingur R. - Fjölnir
ÍA - KR
Þróttur Vogum - Afturelding
Selfoss - Njarðvík
Dalvík/Reynir - Reynir Sandgerði
Leikirnir í 32-liða úrslitunum fara fram 6 og 7. júní næstkomandi





