FC Bayern og Chelsea mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar klukkan 18:45 í kvöld.
Guðmundur Benediktsson og Tryggvi Guðmundsson hafa spáð í leikina í Meistaradeildinni fyrir Fótbolta.net og hér að neðan má sjá spá Gumma fyrir sjálfan úrslitaleikinn.
Guðmundur Benediktsson og Tryggvi Guðmundsson hafa spáð í leikina í Meistaradeildinni fyrir Fótbolta.net og hér að neðan má sjá spá Gumma fyrir sjálfan úrslitaleikinn.
FC Bayern 3 - 2 Chelsea (Eftir framlengingu)
Það er erfitt að rýna í þetta því að fjölmargir leikmenn verða bara í VIP stúkunni. Bæði lið eru veik til baka í þessum leik og ég ætla spá því að við fáum markaleik. Robben og Schweinsteiger skora fyrir FC Bayern en hinumegin munu Drogba og Lampard skora eftir undirbúning frá Juan Mata. Í framlengingu poppar upp Mario Gomez og hann skorar sigurmarkið eftir að hafa verið ósýnilegur í 110 mínútur í leiknum.



