Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   sun 20. maí 2012 10:00
Elvar Geir Magnússon
Daníel Geir Moritz spáir í leiki 4. umferðar
Daníel Geir Moritz.
Daníel Geir Moritz.
Mynd: Úr einkasafni
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Fyndnasti maður Íslands spáir í spilin fyrir fjórðu umferð Pepsi-deildar karla en hún rúllar af stað í dag. Daníel Geir Moritz freistar þess að ná fleiri en þremur réttum og toppa þar með Pál Viðar Gíslason sem var síðasti spámaður.

Daníel hefur farið á einn leik á tímabilinu hingað til en stefnir á að fara að mæta betur þegar úlpuveðrið hverfur.

„Ég kíkti á Fram - Valur. Blessunarlega var frítt á þann leik svo ég þurfti ekki að biðja um endurgreiðslu, svo leiðinlegur var hann," segir Daníel.

ÍBV 2 - 1 Fylkir (16:00 í dag)
Ég sá Magga Gylfa á Saffran fyrir helgi að reyna að signa einhvern útlending. Það endilega skilar ekki sigri en þeir vinna Fylki, 2-0 eða 2-1... segjum 2-1.

ÍA 5 - 1 Keflavík (19:15 í kvöld)
Ég held að Keflvíkingar verði smeykir. Þeir verða í einhverskunar basli og það er stuð á Skaganum.

Valur 0 - 0 KR (19:15 í kvöld)
Þetta verður ógeðslega leiðinlegur leikur... það gæti þó verið að KR laumi inn „vélar"-marki, skora í lokin og vinna bara því þeir eru KR.

FH 3 - 1 Breiðablik (20:00 í kvöld)
Ég held að FH verði í góðum málum í sumar... og Breiðablik ekki!

Grindavík 2 - 2 Stjarnan (19:15 á morgun)
Þetta verður jafntefli. Ég held að varnarleikur verði ekki í hávegum hafður og Gaui Þórðar hefur enn ekki náð að búa til kjúklingasalat.

Fram 6 - 0 Selfoss (19:15 á morgun)
Ég held að Fram hafi fundið taktinn og það verður of mikið fyrir Selfoss að fara á Laugardalsvöll núna. Þeir verða ekki tilbúnir í þennan leik.

Fyrri spámenn:
Páll Viðar Gíslason (3 réttir)
Hörður Magnússon (1 réttur)
Bjarki Már Elísson (1 réttur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner