Heimild: Goal
Borussia Monchengladbach hefur keypt miðjumanninn Granit Xhaka frá Basel í Sviss.
Þessi 19 ára gamli leikmaður skrifaði undir fimm ára samning við Gladbach í dag.
Xhaka vakti athygli fyrir góða frammistöðu á EM U21 árs landsliða í fyrra sem og í Meistaradeildinni með Basel á nýliðnu tímabili.
Hamburg gerði tilboð í Xhaka í janúar en Basel ákvað að hafna því.
Leikmaðurinn hefur nú gengið í raðir Gladbach sem mun leika í Meistaradeildinni á næsta tímabili.



