Heimild: Dirty Tackle
Paul Greengrass, sem hlotið hefur tilnefningar til óskarsverðlauna fyrir kvikmyndina United 93, ætlar að gera bíómynd um spænska stórliðið Barcelona.
Greengrass, sem hefur leikstýrt öðrum myndum á borð við Bloody Sunday, Bourne Supremacy, Bourne Ultimatum og Green Zone, en hann hefur ákveðið að færa sig yfir á svið knattspyrnunnar.
Hann var mættur á verðlaunahátíð í Cannes í Frakklandi á dögunum og leitaði að aðilum til þess að styrkja verkefnið, en þá fjallar myndin aðallega um síðustu fjögur ár félagsins, þar sem Pep Guardiola, fagnaði þrettán titlum og á möguleika á þeim fjórtánda.
Samkvæmt heimildum LA Times þá kemur myndin til með að fjalla um undirbúning fyrir næsta tímabil í spænsku deildinni þar sem liðið reynir að ná höndum a spænska titlinum á ný.
Greengrass ætlar sér að hefja tökur á myndinni síðar á árinu, en ljóst er að hún kemur til með að vera vinsæl. Það muna flestir, ef ekki allir eftir myndinni Bend It Like Beckham og Goal myndunum sem urðu vinsælar.



