Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 18. maí 2012 20:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Didier Drogba: Ég er ekki leikari
Didier Drogba, framherji Chelsea á Englandi, hefur neitað því að hann sé leikari á vellinum, en Jupp Heynckes, þjálfari FC Bayern lét út úr sér þau orð á dögunum.

Drogba, sem er 34 ára gamall hefur verið gagnrýndur undanfarin ár fyrir að liggja mikið í jörðinni og leikaraskap, en þýski þjálfarinn Jupp Heynckes, sem þjálfar Bayern, gagnrýndi hann meðal annars fyrir það á dögunum.

FC Bayern og Chelsea mætast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á morgun á Allianz vellinum í München, en Drogba hefur svarað fyrir sig og harðneitar fyrir þetta.

,,Ég veit ekki til þess að ég sé leikari, nei. Bayern er með flottan þjálfara sem hefur mikla reynslu og ber ég mikla virðingu fyrir honum, það er það eina sem ég get sagt," sagði Drogba.
Slapp
banner
banner