Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid á Spáni, hefur látið það eftir sér að hann sé betri en argentíski snillingurinn Lionel Messi hjá Barcelona, en frá þessu greindi hann í viðtali við CNN.
Real Madrid varð á dögunum spænskur meistari eftir langa bið, en Börsungar hafa verið með yfirburði undanfarin ár þangað til á þessu tímabili. Eini titillinn sem er í boði hjá félaginu sem stendur er spænski bikarinn en þá mætir liðið Athletic Bilbao.
Madrídingar unnu spænsku deildina, en líkt og Barcelona, féll liðið úr leik í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu og datt þá úr spænska bikarnum í leiðinni. Félagið er þó á uppleið og hefur Jose Mourinho, þjálfari liðsins, nú tekist að vinna deild í fjórum mismunandi löndum.
Ronaldo kom fram í viðtali við CNN á dögunum, en þar taldi hann sig betri en Lionel Messi í augnablikinu. Ronaldo skoraði 60 mörk í 55 leikjum á tímabilinu á meðan argentíski leikmaðurinn skoraði 72 mörk í 59 leikjum.
,,Sumt fólk segir að ég sé betri og aðrir segja að hann sé betri. Í lok dag þá ákveður fólkið hvor er betri og ég tel að ég sé betri," sagði Ronaldo.
Hægt er að sjá myndband af viðtalinu hér að neðan.



