Heimild: Sky
Fernando Llorente, framherji Athletic Bilbao á Spáni, segist ekkert hafa heyrt frá ensku meisturunum í Manchester City.
Llorente, sem er 27 ára gamall hefur verið frábær með Athletic Bilbao undanfarin tímabil, en hann er einhver eftirsóttasti framherjins Evrópu um þessar mundir. Hann er kominn með 29 mörk á tímabilinu og þá hefur liðið komið sér í tvo úrslitaleiki.
Bilbao tapaði fyrir Atletico Madrid í úrslitaleik Evrópudeildarinnar og þá mætir liðið Barcelona í úrslitum spænska bikarsins.
Llorente gæti því mögulega farið frá liðinu í sumar, en talið er að hann sé með klásúlu í samning sínum sem segir að hann megi fara ef tilboð upp á 28 milljónir punda berist.
Manchester City hefur verið talinn líklegast til að hreppa leikmanninn, en hann segir að engar viðræður hafi átt sér stað.
,,Þetta er ekki satt. Ég skil það þannig að orðrómur birtist í dagblöðum til þess að auka líkur á sölu, en ég er ekki í viðræðum við Manchester City eða neitt annað lið. Ég er ánægður hjá Bilbao. Þeir hafa boðið mér nýjan samning og við erum í viðræðum," sagði Llorente.



