Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 18. maí 2012 20:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: ESPN 
Solskjær fundaði með eigendum Aston Villa í kvöld
Ole Gunnar Solskjær, fyrrum leikmaður Manchester United og þjálfari Molde í Noregi, flaug í kvöld á einkaþotu til Englands þar sem hann fundaði með eigendum Aston Villa, sem leikur í ensku úrvalsdeildinni.

Aston Villa lét Alex McLeish taka poka sinn sem knattspyrnustjóri liðsins á dögunum eftir vægast sagt slakan árangur, en liðið hafnaði í sextánda sæti deildarinnar og náði þá litlum sem engum árangri í bikarkeppnum.

Eins og kom fram fyrr í dag þá staðfesti Molde í norsku úrvalsdeildinni að enska félagið væri í viðræðum við Ole Gunnar Solskjær, þjálfara liðsins, en hann flaug til Birmingham fyrr í dag með einkaþotu.

Eftir að hafa fundað með eigendunum í fjórar klukkustundir flaug hann svo aftur til Noregs, þar sem Molde undirbýr sig fyrir leik gegn Sandnes Ulf í norsku deildinni á sunnudag.

,,Ég get staðfest að ég hef rætt við Aston Villa. Ég get staðfest að það voru engar viðræður, heldur einungis óformlegt spjall. Þeir eru með fleiri knattspyrnustjóra í viðtölum líka," sagði Ole Gunnar.

,,Ég vildi sýna svona stóru félagi virðingu mína með því að svara kalli þeirra með góðu spjalli, en ég er þjálfari Molde og var spjallið því einungis af eðlilegum toga," sagði hann að lokum.
Slapp