Heimild: South Wales Evening Post
Swansea City, sem leikur í ensku úrvalsdeildinni er nálægt því að semja við þýska liðið Hoffenheim um kaup á Gylfa Þór Sigurðssyni, en þetta kemur fram í South Wales Evening Post.
Huw Jenkings, formaður Swansea, hefur verið undanfarna daga í Þýskalandi í viðræðum við Hoffenheim, en svo virðist sem að hann sé nálægt því að tryggja sér þjónustu Gylfa næstu árin.
Gylfi hefur verið á láni frá Hoffenheim hjá Swansea frá því í janúar, en hann blómstraði heldur betur og skoraði sjö mörk í sautján leikjum á tímabilinu. Hann var þá valinn besti leikmaður mars mánaðar.
Það lítur því út fyrir að hann verði dýrasti leikmaður Swansea frá upphafi, eða í 100 ára sögu félagsins, en Danny Graham heldur þeim titli, þar sem hann kostaði 3,5 milljónir punda.
Verðmiðinn á Gylfa er þó örlítið hærri, en hann kemur til með að kosta 10 milljónir punda sem þrefaldar næstum því fyrra met.
Manchester United og Liverpool voru einnig sögð vera á eftir kappanum, en svo virðist sem hann sé hársbreidd frá því að semja við Swansea.
Gylfi samdi við Hoffenheim árið 2010 eftir að hafa leikið glimrandi vel með Reading í ensku fyrstu deildinni, en Gylfi varð markahæsti leikmaður Hoffenheim á sínu fyrsta tímabili, en fékk lítið að spreyta sig árið eftir og sat mestmegnis á tréverkinu hjá félaginu.



