Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 18. maí 2012 21:45
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Goal.com 
Fabianski: Vonandi er ævintýri mitt hjá Arsenal á enda
Lukasz Fabianski, markvörður Arsenal á Englandi, vonast til þess að yfirgefa félagið í sumar, en hann hefur þurft að sætta sig heldur mikið við tréverkið undanfarin tímabil.

Fabianski, sem er 27 ára gamall barðist um markvarðarstöðuna við Wojciech Szczesny hjá félaginu, en tapaði þeirri baráttu og hefur sá síðarnefndi verið að sinna markvarðarstöðunni hjá liðinu frá því snemma á síðasta ári.

Pólski markvörðurinn vonast eftir því að geta yfirgefið félagið í sumar og að ævintýri hans hjá félaginu sé á enda.

,,Ég vona að ævintýri mitt hjá Arsenal sé á enda. Ég er að hugsa mér til hreyfings og vil ég spila í sterkri deild," sagði Fabianski.

,,Ég vildi yfirgefa liðið fyrr á tímabilinu, en ég fékk ekki grænt ljós frá Arsene Wenger," sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner