Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 18. maí 2012 20:34
Anton Ingi Leifsson
Umfjöllun: FH slátraði ÍBV
Kvenaboltinn
Aldís Kara skoraði tvö mörk og átti góðan leik. Hér er hún í leiknum í kvöld.
Aldís Kara skoraði tvö mörk og átti góðan leik. Hér er hún í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Sigrún Ella Einarsdóttir skoraði fyrsta mark FH í kvöld.
Sigrún Ella Einarsdóttir skoraði fyrsta mark FH í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Bryndís Jóhannesdóttir fagnar marki sínu.
Bryndís Jóhannesdóttir fagnar marki sínu.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH 4 - 1 ÍBV
1-0 Sigrún Ella Einarsdóttir ('18)
2-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir ('25)
3-0 Bryndís Jóhannesdóttir ('56)
4-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir ('59)
4-1 Berglind Björg Þorvalsdóttir (víti) ('93)

ÍBV-stúlkur komu í heimsókn í Kaplakrika í kvöld. Fyrir leik var búist við hörkuleik, en flestir bjuggust þó við sigri Eyjastelpna. Önnur varð raunin og lokatölur 4-1 fyrir FH í markaleik.

Leikurinn byrjaði nokkur fjörlega, en ÍBV var þó ögn sterkari aðilinn. Það var þó FH sem skoraði fyrsta markið eftir 18 mínútna leik. Aldís Kara var þá með boltann í dauðafæri, en ákvað að leggja boltann til hliðar þar sem Sigrún Ella var mætt og hamraði boltanum í markið.

Það tók FH einungis sjö mínútur að komast í 2-0, en þar var að verki Aldís Kara Lúðvíksdóttir. Hún lék laglega á varnamenn ÍBV og lagði boltann svo skemmtilega í markið. Staðan 2-0 fyrir FH í hálfleik.

Á þriggja mínútna kafla í síðari hálfleik náði FH að gera útum leikinn. Bryndís Jóhannesdóttir skoraði eftir laglegt spil og Aldís Kara fékk svo boltann eftir skot Sigmundínu Söru og skoraði af miklu öryggi.

Berglind Björg náði að klóra í bakkann fyrir ÍBV úr víti í uppbótartíma, eftir að Sólveig Þórarinsdóttir braut á Berglindi.

Heilt yfir var ÍBV liðið alls ekki slakari aðilinn þótt tölurnar gefa annað til kynna. Þær gjörsamlega óðu í færum, en það féll ekkert með þeim og boltinn fór einungis einu sinni yfir marklínuna hjá FH.

Lokatölur 4-1 og virkilega kærkomin þrjú stig í höfn fyrir FH. Hrikaleg vonbrigði fyrir ÍBV að tapa þessum leik,enda þarf liðið að vinna þessa leiki ætli liðið sér að vera í toppbarátunni.

Byrjunarlið FH:
Nanna Rut Jónsdóttir
Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir, Guðrún Bentína Frímansdóttir, Sólveig Þórarinsdóttir, Sveinbjörg Andrea Auðunsdóttir
Aníta Lísa Svansdóttir, Elísabet Guðmundsdóttir
Hildur Egilsdóttir, Bryndís Jóhannesdóttir, Sigrún Ella Einarsdóttir
Aldís Kara Lúðvíksdóttir

Byrjunarlið ÍBV:
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
Elísa Viðarsdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir, Sóley Guðmundsson, Svava Tara Ólafsdóttir
Anna Þórunn Guðmundsdóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir
Danka Podovac
Vesna Smiljkovic, Kristín Erna Sigurlásdóttir, Berglind Björg Þorvalsdóttir

Maður leiksins: Aldís Kara Lúðvíksdóttir - FH
Áhorfendur: Um 150.
Aðstæður: Smá vindur, en völlurinn ágætur og veðrið fínt.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner