Breiðablik 3 - 0 Afturelding
1-0 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('19)
2-0 Rakel Hönnudóttir ('70)
3-0 Fanndís Friðriksdóttir (víti) ('75)
1-0 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('19)
2-0 Rakel Hönnudóttir ('70)
3-0 Fanndís Friðriksdóttir (víti) ('75)
Breiðablik vann nokkuð þægilegan 3-0 sigur á Aftureldingu í kvöld. Á tíma var leikurinn leikur kattarins að músinni, en hann jafnaðist nú út þó Blikastelpur væru mun sterkari.
Blikastelpur byrjuðu mun betur og eftir nítjan mínútur kom fyrsta markið. Þórdís Hrönn fékk boltann, lék skemmtilega á Halldóru Þóru og þrumaði boltanum efst í markhornið. Stórglæsilegt mark og Blikarnir komnir yfir.
Rúmum sex mínútum síðar klikkaði Ásta Eir algjöru dauðafæri eftir frábæran undirbúning frá Fanndísi Friðriksdóttir, en Ásta vippaði boltanum yfir markið.
Það var Aftureldin sem fékk næsta færi, en eftir góða fyrirgjöf frá hægri skallaði Aldís Mjöll Helgadóttir í slánna, niður á línu og boltinn datt niður á línuna. Gestirnir úr Mosfellsbæ hrikalega nálægt því að jafna metin. Stuttu seinna átti Rakel Hönnudóttir tvö hörkuskot, en Kristin Russell varði vel í bæði skiptin. Staðan 1-0 í hálfleik fyrir Breiðablik.
Afturelding byrjaði seinni hálfleik ágætlega og þegar tíu mínútur voru liðnar af honum skaut Lára Kristín frábæru skoti að marki Blika, en Birna var vel á verði í markinu.
Síðari hálfleikur var alls ekki skemmtilegur. Breiðablik bætti þó við markinu á 70. mínútu. Rakel Hönnudóttir fékk þá frábæra sendingu inn fyrir vörnina og vippaði boltanum yfir Kristen í marki Aftureldingar.
Rakel var svo aftur á ferðinni tveimur mínútum síðar. Þá fiskaði hún víti eftir að Kristen Russell hafði keyrt hana niður. Fanndís Friðriksdóttir fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi. 3-0 og dagskránni nánast lokið.
Lokatölur í Kópavogi í kvöld 3-0 öruggur sigur Breiðabliks. Mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri, en Breiðablik sem og Afturelding hefðu getað skorað.
Byrjunarlið Breiðabliks:
Birna Kristjánsdóttir
Guðrún Erla Hilmarsdóttir, Ragna Björg Einarsdóttir, Guðrún Arnardóttir
Rakel Ýr Einarsdóttir, Sandra Sif Magnúsdóttir, Rakel Hönnudóttir
Fanndís Friðriksdóttir
Ásta Eir Árnadóttir, Björk Gunnarsdóttir, Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Byrjunarlið Aftureldingar:
Kristen Russell
Halldóra Þóra Birgisdóttir, Eva Hafdís Ásgrímsdóttir, Erica Henderson, Guðný Lena Jónsdóttir
Vendulega Strnadova, Sandra Dögg Björgvinsdóttir, Lára Kristín Pedersen, Sesselja Líf Valgeirsdóttir
Carla Lee, Aldís Mjöll Helgadóttir.
Maður leiksins: Rakel Hönnudóttir - Breiðablik.
Áhorfendur: Um 260
Aðstæður: Völlurinn góður, en nokkuð kalt.



