Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 18. maí 2012 21:22
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Michael Laudrup orðaður við stjórastöðu Liverpool
Michael Laudrup, fyrrum þjálfari Getafe og Real Mallorca, er talinn vera einn af þeim stjórum sem enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool ætlar að leita til, en fréttastofa Sky greinir frá þessu í kvöld.

Laudrup, sem gerði garðinn frægan bæði hjá Barcelona og Real Madrid á Spáni sem leikmaður á fínan þjálfaraferil að baki einnig, en honum tókst að stýra Getafe í úrslitaleik spænska bikarsins og á sama tíma að koma liðinu í Evrópudeildina.

Hann þjálfaði síðast lið Real Mallorca, en hann hætti þar í september. Hann hefur áður þjálfað Brondby og Spartak Moskvu og þá var hann aðstoðarþjálfari danska landsliðsins árið 2002.

Hann er einn af þeim kostum sem Liverpool ætlar að leita til, en liðið leitar að nýjum stjóra eftir að Kenny Dalglish var sagt upp störfum á dögunum. Liðið er þegar að hefja viðræður við Roberto Martinez, stjóra Wigan og þá er Fabio Capello og Pep Guardiola orðaðir við stöðuna einnig.

Þess má til gamans geta að sonur Michael Laudrup, Mads, leikur einmitt með Stjörnunni í Pepsi-deildinni, en hann er á láni frá HB Koge í Danmörku.
Slapp