Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 18. maí 2012 22:17
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Goal.com 
Formaður Molde: Vonbrigði að Solskjær hafi farið til Englands
Oystein Neerland, formaður Molde í Noregi, er allt annað en sáttur með Ole Gunnar Solskjær, þjálfara liðsins, en hann fór til Englands í dag til þess að ræða við eigendur Aston Villa.

Aston Villa lét Alex McLeish taka poka sinn á dögunum eftir slakan árangur, en liðið endaði í sextánda sæti deildarinnar og féll þá úr öllum bikarkeppnum í leiðinni.

Norski þjálfarinn og goðsögnin, Ole Gunnar Solskjær, sem lék hjá Manchester United við góðan orðstír, hefur verið sterklega orðaður við stjórastöðu liðsins, en hann fór með þotu til Englands í dag og sat fund með eigendum félagsins í fjórar klukkustundir áður en hann flaug aftur heim.

,,Við vorum látnir vita af áhuganum og samtölunum, en við vorum samt fyrir vonbrigðum að hann ákvað að fljúga til Englands í dag og ræða við Aston Villa," sagði Neerland.

,,Það virðist eins og við vitum ekkert af þessu, þarna er reynt á traustið og við verðum laga það áður en við höldum áfram. Við búumst við því að það verði haldinn fundur með Ole Gunnar á morgun varðandi það."

,,Við munum taka á þessu innan félagsins og fylgjast með gangi mála. Svo höldum við áfram að einbeita okkur að íþróttinni, því það eru þrír mikilvægir leikir fyrir frí og sá fyrsti er á sunnudag,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner