Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 18. maí 2012 22:45
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Jurgen Klopp útilokar að taka við ensku liði
Jurgen Klopp, þjálfari Borussia Dortmund í Þýskalandi, hefur útilokað það að taka við ensku félagi í sumar.

Þýski þjálfarinn hefur gert góða hluti undanfarin tvö ár með Borussia Dortmund, en liðið hefur unnið þýsku deildina tvö ár í röð, þrátt fyrir að þjálfarinn hafi haft lítið á milli handanna.

Hann er talinn einn af þeim tólf stjórum sem Liverpool ætlar að funda með, en Klopp er á samning hjá Dortmund til ársins 2016 og segist hann sjálfur hafa engan áhuga á að yfirgefa þýska stórliðið.

,,Ég hef orðið var við áhuga frá Englandi undanfarnar vikur og það er sannur heiður að vera orðaður við stærstu félögin á Englandi," sagði Klopp.

,,En ég er hinsvegar á samning hjá Dortmund til ársins 2016, svo ég er ekki á leið frá félaginu. Ég elska að vera hérna og hef engan áhuga á að fara," sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner