Eins og alla föstudaga, þá hefur TVGolo tekið saman fallegustu mörk vikunnar, en það mátti sjá nóg af áhugaverðum mörkum í þessari viku.
Það var mikið af þrumuskotum sem stela senunni í dag. Eric Hassli, leikmaður Vancouver Whitecaps skoraði gullfallegt mark í MLS-deildinni og það sama gerði Lee Nguyen hjá New England Revolution í sömu deild.
Radamel Falcao hjá Atletico Madrid heldur áfram að heilla áhorfendur, en hann skoraði með laglegri bakfallsspyrnu í síðasta leik spænsku deildarinnar. Leikmennn á borð við Franck Ribery og David Beckham eiga þá mörk einnig í myndbandinu.
Hægt er að sjá það hér að neðan.



