Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 18. maí 2012 23:59
Anton Ingi Leifsson
Fanndís: Alltaf gott að koma til Vestmannaeyja
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég er virkilega ánægð. Við náðum í þrjú stig hérna á heimavelli sem við ætluðum okkur. Við verðum að ná í þrjú stig á heimavelli," sagði Fanndís Friðriksdóttir, fyrirliði Blika, við Fótbolta.net eftir sigurleik gegn Aftureldingu, 3-0.

Aðspurð um hvað skóp sigurinn svaraði Fanndís: ,,Bara góð barátta og við ætluðum okkur þetta. Það skóp sigurinn," bætti hún við en Breiðablik er komið með fjögur stig í deildinni sem hefur spilast gríðarlega jafnt þetta árið.

,,Þetta verður greinilega mjög skemmtilegt mót og spennandi það eru allir að vinna alla og ná stigum af öllum."

Næsti leikur Breiðabliks er gegn ÍBV í Vestmannaeyjum.

,,Það er alltaf gott að koma til Vestmannaeyja. Ég er úr Eyjum, þannig það er gott að komast stundum heim," sagði Fanndís.
Slapp
banner
banner
banner