Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 19. maí 2012 12:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Lahm gefur til kynna að Chelsea verði auðveld bráð
Phillip Lahm, fyrirliði FC Bayern í Þýskalandi, hefur sterklega gefið til kynna að Chelsea verði auðveldur andstæðingur er liðin mætast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í München í kvöld.

Þýski varnarmaðurinn veit vel af hættunni sem stafar af Roberto Di Matteo og félögum í Chelsea, en liðin eigast við á Allianz-Arena leikvanginum, sem er heimavöllur Bayern og virðist liðið því hafa örlítið forskot á enska liðið.

Lahm veit þá hvað Didier Drogba, framherji liðsins er hættulegur, en þýski leikmaðurinn segir að Bæjarar mæti einnig sterkir til leiks.

,,Við vitum öll að Drogba er magnaður leikmaður. Við vitum að hann er gríðarlega sterkur og þetta verður baráttuleikur, en við erum sterkt lið og ég get ekki séð að þetta verði eitthvað vandamál," sagði Lahm.

,,Chelsea hefur einnig verið í úrslitaleik keppninnar áður og sumir leikmenn þeirra hafa leikið í úrslitaleiknum. Frá sjónarhorni margra, þá gæti þetta verið síðasta tækifærið til þess að vinna keppnina."

,,Við í Bayern erum allir í blóma ferilsins og getum spilað saman í nokkur ár til viðbótar,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner
banner