Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 19. maí 2012 11:00
Daníel Freyr Jónsson
Thomas Hitzlsperger farinn frá Wolfsburg
Thomas Hitzlsperger einn þriggja leikmanna sem hafa yfirgefið herbúðir Wolfsburg eftir samkomulagi.

Ásamt Þjóðverjanum eru það þeir Hasan Salihamidzic og Chris sem hafa farið frá félaginu.

Allir leikmennirnir gengu í raðir félagsins á síðastliðnu ári og hafði þeim mistekist að festa sæti sitt í liðinu.

Hitzlsperger, sem er þrítugur að aldri, bað sjálfur um að fá samningi sínum rift, en hann átti ár eftir af samningi sínum eftir að hafa komið frá West Ham síðasta sumar.

Þessi reynslumikli miðjumaður á að baki rúmlega 250 leiki í efstu deildum Englands, Ítalíu Þýskalands með liðum eins og Aston Villa, Stuttgart og Lazio. Átti hann í miklum meiðslavandræðum á nýliðinni leiktíð og náði hann einungis fimm leikjum með Wolfsburg.

Hann hefur einnig leikið 52 landsleiki með Þýskalandi.
Slapp
banner
banner