Bikarmeistarar Vals og nýliðar Selfoss mættust í 2. umferð Pepsi-deildar kvenna á Vodafonevellinum í kvöld. Kalt var í veðri en leikmenn létu það ekki á sig fá og buðu upp á hörkuleik.
Valur 4 - 1 Selfoss
1-0 Thelma Björk Einarsdóttir ('23)
1-1 Guðmunda Brynja Óladóttir ('31)
2-1 Elín Mette Jensen ('43)
3-1 Telma Hjaltalín Þrastardóttir ('84)
4-1 Telma Hjaltalín Þrastardóttir ('90+3)
Fyrri hálfleikurinn var frekar rólegur. Vissulega voru þrjú mörk skoruð en lítið gerðist á milli þeirra.
Fyrsta mark leiksins kom á 23. mínútu. Thelma Björk Einarsdóttir á heiðurinn af því en hún komst ein í gegnum vörn Selfyssinga og renndi boltanum snyrtilega í hægra hornið framhjá Nicole McClure, markmanni þeirra.
Lítið gerðist fram að jöfnunarmarki Selfyssinga sem kom á 31. mínútu. Markið skoraði Guðmunda Brynja Óladóttir eftir slæm varnarmistök Valsara.
Elín Metta Jensen kom Valsstúlkum aftur yfir eftir góða stungusendingu frá Dóru Maríu Lárusdóttir á 43. mínútu. Þetta var ein af mörgum stungusendingum Dóru Maríu til Elínar en loksins tókst þeim að komast fram hjá markmanni Selfyssinga sem hafði fram að þessu staðið vaktina með prýði.
Staðan í hálfleik var 2-1 Valsstúlkum í vil. Forskot þeirra var fyllilega verðskuldað en þær voru mikið sterkari í fyrri hálfleik.
Framan af seinni hálfleik gerðist ósköp lítið. Mikið um baráttu á miðjunni en lítið um hættulegar sóknir og færi. Valsstúlkur voru þó meira með boltann og virtust stjórna leiknum.
Síðustu 10 mínútur leiksins virtust Valsstúlkur taka við sér aftur. Þær áttu dauðafæri á eftir dauðafæri en þeim tókst ekki að nýta þau fyrr en á 84. mínútu þegar Telma Þrastardóttir kom þeim í 3-1. Markið hafði legið ansi lengi í loftinu þegar það loksins kom.
Telma Þrastardóttir bætti svo við sínu öðru marki og fjórða marki Vals á 93. mínútu. Katrín Gylfadóttir átti þá frábæra langa sendingu á Telmu sem hljóp af sér vörn Selfyssinga, lék á markmann þeirra og skoraði örugglega. Virkilega vel gert hjá þeim báðum.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og lokatölur því 4-1 fyrir Val. Verðskuldaður sigur Valsstúlkna sem fara með sigrinum upp í 4. sæti deilarinnar.
Lið Vals: Svava Rós Guðmundsdóttir, Telma Ólafsdóttir, Elín Metta Jensen, Dóra María Lárusdóttir (F), Mist Edvardsdóttir, Brett Maron (M), Dagný Brynjarsdóttir, Thelma Björk Einarsdóttir, Hildur Antonsdóttir, Berglind Rós Ágústsdóttir, Katrín Gylfadóttir.
Lið Selfoss: Nicole McClure (M), Fransiska Jóney Hannesdóttir, Þóra Margrét Ólafsdóttir (F), Íris Sverrisdóttir, Katrín Ýr Friðgeirsdóttir, Guðmunda Brynja Óladóttir, Thelma Sif Kristinsdóttir, Anna María Friðgeirsdóttir, Eva Lind Elíasdóttir, Valorie O’Brien.
Aðstæður: Frekar kalt en völlurinn flottur.
Maður leiksins: Katrín Gylfadóttir, Valur.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
