Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 19. maí 2012 10:30
Daníel Freyr Jónsson
Rafael kallaður í brasilíska landsliðið
Rafael da Silva, hægri bakvörður Manchester United, hefur verið kallaður inn í brasilíska landsliðið.

Rafael kemur þar inn í stað Dani Alves, leikmanns Barcelona, sem meiddist á öxl í vikunni og verður frá stóran part af sumrinu.

Framundan eru vináttuleikir gegn Danmörku, Bandaríkjunum, Mexíkó og Argentínu. Leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir Ólympíuleikana í London í sumar.

Hinn 21 árs gamli Rafael hefur enn ekki leikið landsleik fyrir þjóð sína, en hann hefur leikið með yngri landsliðum Brasilíu.

Rafael lék 18 leiki á leiktíðinni með United og spilaði hann sína fyrstu leiki fyrir félagið árið 2008.
Slapp
banner
banner