Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 19. maí 2012 11:30
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: BBC 
Steve Kean í viðræðum við eigendur Blackburn
Framtíð Steve Kean sem stjóri Blackburn er enn óráðin eftir tveggja daga viðræður við eigendur félagsins á Indlandi.

Skotinn þurfti að þola mikið mótlæti á tímabilinu sem endaði með falli liðsins. Stuðningsmenn liðsins mótmæltu einnig eignarhaldi liðsins, en hið indverska Venkys félag er ekki vinsælt meðal þeirra.

Í vikunni birtist síðan myndband á netinu þar sem Kean lofaði stuðningsmönnum Blackburn sæti í efri hluta deildarinnar og að þeir yrði deildarmeistarar.

Að auki talaði hann þar illa um Sam Allardyce, fyrrverandi stjóra liðsins, sem nú hyggst ráðfæra sig við lögfræðinga um hvort það mál fari lengra.

Kean ferðaðist til Indlands í vikunni til viðræðna við Venkys, þar sem framhald hans sem stjóri liðsins átti að ráðast. Samkvæmt heimildum BBC hefur lítið komið úr viðræðunum sem munu því halda áfram.

Hinn 44 ára gamli Kean sagði eftir lokaleik deildarinnar gegn Chelsea um síðustu helgi að hann ætlaði sér ekki að segja starfi sínu lausu, heldur ætlar hann sér að snúa með liðið aftur í úrvalsdeildina.

Slapp
banner