Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 19. maí 2012 12:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: BBC 
Lampard: Heimavöllurinn gefur Bayern forskot
Frank Lampard, leikmaður Chelsea, er spenntur fyrir leik liðsins í úrslitum Meistaradeildar Evrópu gegn FC Bayern sem fram fer í kvöld.

Þetta verður annar úrslitaleikur Lampard á ferlinum, en árið 2008 var hann í liði Chelsea sem beið lægri hlut gegn Manchester United í úrslitaleiknum.

Lampard hefur þó fulla trú á að Chelsea geti spilað til sigurs í kvöld.

,,Svo lengi sem við trúum á sjálfa okkur og erum með góða einbeitingu og ákveðni, þá segi ég bara ´komdu með það´," sagði Lampard.

Þessi 33 ára gamli Englendingur viðurkennir þó að það veiti Þjóðverjunum ákveðið forskot að leikurinn sé spilaður á þeirra eigin heimavelli, Allianz Arena.

,,Sú staðreynd að það er spilað á Allianz Arena gefur þeim forskot en það er frábært hér í MunichStemningin er frábær og við höfum aðeins náð að kynnast henni, þegar við komum af flugvellinum," bætti Lampard við.

,,Það er hægt að deila um hvort það hjálpi til eða ekki að skipta um föt í þínum eigin búningsklefa, eða að spila á þínum heimavelli fyrir framan stuðningsmenn þína, en það er mögnuð ákefð í okkar liði."
Slapp
banner
banner