Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 19. maí 2012 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Mirror | The Sun 
Ferguson fluttur á spítala - Hætti ekki að blæða úr nefinu
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, var í gær fluttur í snatri á spítala í Glasgow eftir að hann fékk blóðnasir.

Ferguson, sem er 70 ára gamall, var mættur til Glasgow, en það eru fjörutíu ár liðin frá því Glasgow Rangers og Moscow Dynamo mættust í úrslitaleik í keppni sem ber nú nafnið Evrópudeildin, en hann átti að halda ræðu á uppákomunni en þurfti að þjóta.

Hann fékk þá svakalegar blóðnasir, sem endaði með því að hann var fluttur á næsta spítala, þar sem hann var síðar útskrifaður af læknum, en það var ekki talið eins alvarlegt og í fyrstu.

Talsmaður Manchester United greindi þá frá því í gær að skoski stjórinn væri kominn heim til sín og hvílir sig sem stendur.

Alex McLeish, sem var látinn taka poka sinn hjá Aston Villa var þá mættur á uppákomuna, en hann var partur af sigurliði Rangers þetta árið. Þá voru fyrrum leikmenn Barcelona einnig þarna ásamt öðrum heiðursmönnum.
Slapp
banner
banner
banner