Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 19. maí 2012 12:17
Brynjar Ingi Erluson
Ole Gunnar hafnaði Aston Villa fyrir Molde
Ole Gunnar Solskjær, fyrrum leikmaður Manchester United og þjálfari Molde í Noregi, hefur hafnað enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa, en frá þessu greinir Stan Collymore á talkSPORT.

Ole Gunnar flaug í gær til Birmingham þar sem Aston Villa á rætur síanr að rekja, en hann flaug með einkaþotu eiganda félagsins. Hann ræddi við þá í fjórar klukkustundir áður en hann flaug aftur til Noregs.

Hann þarf þá að undirbúa lið Molde fyrir leik gegn Sandnes Ulf í norsku deildinni, en hann fer fram á morgun.

Samkvæmt heimildum talkSPORT þá hefur Ole Gunnar hafnaði tækifærinu að taka við Aston Villa, en talið er að liðið hafi þegar verið með nokkra aðra þjálfara í sigtinu.

Formaður Molde lýsti þá í gær yfir vonbrigðum sínum með ákvörðun Ole Gunnar um að fljúga til Englands til þess að ræða við Villa, en hann þarf ekki að hafa miklar áhyggjur lengur af því þar sem norski þjálfarinn hefur hafnað Villa.
Slapp
banner