Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 19. maí 2012 13:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Welbeck: Ég á Rooney mikið að þakka
Danny Welbeck, leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, segist eiga samherja sínum Wayne Rooney, mikið að þakka fyrir hjálp hans í gegnum árin.

Roy Hodgson valdi Welbeck á dögunum í enska landsliðið sem tekur þátt á Evrópumótinu í Póllandi og Úkraínu, en hann valdi bæði hann og Wayne Rooney í hópinn.

Welbeck hefur verið byrjunarliðsmaður hjá Man Utd á þessu tímabili ásamt Rooney, en Javier Hernandez hefur þurft að sitja á tréverkinu þar sem enska tvíeykið hefur náð að sameina krafta sína.

,,Ég á Wayne mikið að þakka. Hann hefur verið frábær vinur og hefur hjálpað mér gríðarlega mikið. Við höfum náð a skapa sterkt framherjapar saman," sagði Welbeck.

,,Hann er líka magnaður í leikjunum. Hann hættir aldrei að hvísla í eyrað á mér og ráðleggja mér hina og þessa hluti. Hann er frekar fyndinn, því hann kallar mig Daniel á vellinum jafnvel þó flestir kalli mig Danny."

,,Þó svo hann kalli mig Danny þegar við erum ekki að spila eða Welbz, ekki spyrja mig af hverju. Ég er svo heppinn að hann vill að ég standi mig vel og hann er alltaf að reyna að að gefa mér ráð sem hann telur best fyrir mig."

,,Það er ekki hægt að kaupa svona innsýn. Hann veit hvernig er að vera ungur leikmaður sem er að brjóta leið sína í gegnum fótboltann í ensku úrvalsdeildinni og með enska landsliðinu,"
sagði Welbeck að lokum.
Slapp
banner