Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa hefur ekki boðið Ole Gunnar Solskjær, þjálfara Molde samning, samkvæmt nýjustu heimildum talkSPORT.
Stan Collymore, fyrrum leikmaður Aston Villa og Liverpool starfar hjá talkSPORT, en hann greindi frá því fyrr í dag að Solskjær hefði hafnað tilboði félagsins um að hann yrði nýr stjóri þess.
Hann hefur dregið í land með það og samkvæmt hans heimildum þá hefur félagið ekki boðið honum neitt og hefur norski þjálfarinn ekki hafnað neinu tilboði. Framtíð hans er í skoðun og myndi hann íhuga tilboðið ef honum myndi bjóðast það.
Sama segir Ian Taylor, sendiherra Aston Villa, en hann lék árum áður með félaginu einnig og er því Solskjær enn talinn líklegur kostur til þess að taka við starfinu.
Hann átti fund með eigendum félagsins í gær er hann flaug með einkaþotu þeirra til Birmingham og sat fund í fjórar klukkustundir áður en hann flaug aftur til Noregs, þar sem Molde undirbýr sig fyrir leik gegn Sandnes Ulf sem fer fram á morgun.





