Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   lau 19. maí 2012 19:35
Brynjar Ingi Erluson
Valur Fannar: Það er ekki nóg að sigra heima eða 31-0
Valur Fannar Gíslason
Valur Fannar Gíslason
Mynd: Haukar
,,Að sjálfsögðu viljum við náttúrulega fá þrjú stig í öllum leikjum, en svona eftir á hyggja þá held ég að eitt stig sé bara fínt," sagði Valur Fannar Gíslason, leikmaður Hauka eftir markalaust jafntefli liðsins gegn Hetti í fyrstu deildinni.

,,Við mættum bara mjög skipulögðu og ákveðnu og góðu Hattarliði í dag og það kom bara skemmtilega á óvart. Umgjörðin til fyrirmyndar og flott, eða bara glæsilegt hjá Hattarmönnum."

,,Jájá, ég veit það svo sem ekki. Þeir föttuðu það klárlega, þeir voru bara duglegir strákarnir í Hetti, skipulagðir og kraftur í þeim, en við aftur á móti vorum kannski ekki alveg á tánum og að sýna okkar besta en við klárlega eigum að gera betur en við gerðum í dag."

,,Við einhvern vegin vorum bara á hælunum mest allan daginn og það náttúrulega gengur ekki ef við ætlum að vera í toppbaráttu. Það er ekki nóg að sigra bara heima, eða sigra bara 31-0, við verðum að skila frammistöðu í hverjum einasta leik og við vorum ekki alveg að gefa okkar besta,"
sagði hann að lokum.

Hægt er að sjá viðtalið í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner