Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 19. maí 2012 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Francesco Totti: Líður eins og öldungi
Francesco Totti, goðsagnakenndur leikmaður AS Roma á Ítalíu, segir að honum líði eins og síðasta meðlim sinnar kynslóðar í ítölsku A-deildinni.

Alessandro Del Piero fer frá Juventus í sumar rétt eins og Alessandro Nesta, Filippo Inzaghi, Gennaro Gattuso og Gianluca Zambrotta eru að fara frá AC Milan í sumar.

,,Líður mér eins og síðasta öldungi ítalskrar knattspyrnu? Já, en mig langar að halda áfram að spila," sagði Totti í ítalska fréttatímanum Tg1.

,,Hvernig leið mér þegar ég sá tárin streyma niður kynnar AC Milan stuðningsmanna? Ég táraðist nánast sjálfur því ég hugsaði að nú er komin kveðjustund, það er kominn tími til að kveðja mína kynslóð."

Totti er þó ekki langsíðasti öldungurinn þar sem menn á borð við Andrea Pirlo og Massimo Ambrosini eru enn í góðu gamni hjá Juventus og AC Milan, en þeirra tími fer að koma.
Slapp