Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 19. maí 2012 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Galliani: Ibrahimovic fer ekki í sumar
Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, segir að Zlatan Ibrahimovic sé ekki á förum frá félaginu í sumar.

Ibrahimovic hefur verið orðaður við Manchester City eftir fyrsta tímabil sitt án þess að vinna titil í níu ár, en Galliani segir það vera tóma þvælu að Ibrahimovic sé ósáttur.

Greint var frá því í breskum fjölmiðlum að City var að undirbúa risastórt tilboð í Ibrahimovic þar sem Carlos Tevez eða Mario Balotelli færu til Milan og Ibrahimovic yrðu svo boðin 300 þúsund pund á viku sem myndu gera hann launahæsta leikmann heims.

,,Það er ekki satt að Manchester City er búið að bjóða í Zlatan Ibrahimovic," sagði Galliani.

,,Zlatan mun vinna Meistaradeildina í Milan treyju. Við erum ánægðir með að vera komnir í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og vonumst til að geta spilað úrslitaleik sem fyrst."
Slapp
banner
banner