Úrslitaleikur Bayern Munchen og Chelsea er í fullu fjöri þar sem heimamenn hafa verið að sækja stíft á meðan gestirnir frá Englandi hafa verið beittir í skyndisóknum sínum, en staðan er 1-0 fyrir Bayern þegar fimm mínútur eru eftir.
Skemmtilegar myndir eru búnar að birtast á netinu af stuðningsmönnum Bayern Munchen sem fóru á leikinn eins og Franck Ribery í framan.
Skemmtilegar myndir eru búnar að birtast á netinu af stuðningsmönnum Bayern Munchen sem fóru á leikinn eins og Franck Ribery í framan.
Myndin sem er hérna til hægri er af þremur stuðningsmönnum Bayern, en tveir þeirra eru augljóslega búnir að breyta andlitinu sínu til að líkjast Ribery.
Þeir eru þá búnir að farða ör á andlitið, láta skeggið vaxa eins og skeggið á Ribery og með gervitennur.
Andlitið á Ribery er svona útaf því að hann lenti í bílslysi þegar hann var tveggja ára og þurfti að setja hundruði spora í andlit og haus Ribery til að láta það líta sem eðlilegast út.

