Chelsea varð í kvöld Evrópumeistari eftir að hafa lagt FC Bayern að velli á Allianz-Arena í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.
Thomas Müller kom Bayern á 83. mínútu áður en Didier Drogba jafnaði metin fimm mínútum síðar.
Arjen Robben fékk gullið tækifæri til þess að koma Bayern yfir í framlengingu er liðið fékk vítaspyrnu, en Petr Cech sá við honum.
Petr Cech varði þá fimmtu spyrnu Bastian Scweinsteiger í vítaspyrnukeppninni og lagði rauða dregilinn fyrir Didier Drogba sem skoraði úr fimmtu spyrnu Chelsea og tryggði þeim titilinn.


