Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 19. maí 2012 23:38
Jón Stefán Jónsson
Umfjöllun: Þór/KA lagði KR í óspennandi leik
Kvenaboltinn
Úr leiknum í dag.
Úr leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Úr leiknum í dag.
Úr leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
KR og Þór/KA mættust í dag á heimavelli þeirra fyrrnefndu í Vesturbænum. Aðstæður voru allar til fyrirmyndar til þess að bjóða upp á toppleik, veðrið gott og völlurinn flottur. Því miður varð hins vegar raunin sú að leikurinn sem liðin buðu upp á var ekki upp á marga fiska.

Fyrri hálfleikur bauð ekki upp á mörg færi en ef eitthvað var þá voru það gestirnir sem voru aðeins meira ógnandi. Hættulegasta færi fyrri hálfleiks kom eftir hornspyrnu frá Söndru Maríu Jessen inn í miðja þvögu fyrir framan KR-markið þar sem Katrín Ásbjörnsdóttir, núverandi leikmaður Þór/KA og fyrrum KR-ingur átti skot að marki sem varnarmenn KR náðu að komast fyrir og að lokum að hreinsa frá eftir nokkurn barning.
Fátt meir markvert gerðist í fyrri hálfleik.

Lítið var um færi í síðari hálfleik frekar en þeim fyrri og einkenndist leikurinn áfram af mikilli baráttu. Eina mark leiksins leit svo dagsins ljós á 58 mínútu og var það Kayle Grimsley sem skoraði það eftir að Hrafnhildur Agnarsdóttir í marki KR átti misheppnaða hreinsun sem lenti í Söndru Maríu, hún náði ekki að leggja boltann fyrir sig en þess í stað hrökk hann til Kayle sem átti ekki í vandræðum með að setja hann í autt KR-markið.

Það sem eftir lifði leiks hélt baráttan áfram en engin teljandi færi litu dagsins ljós utan þess að Thanai Annis átti skot hátt yfir úr ágætis færi í teignum etir undirbúning Kayle Grimsley.

Lokatölur urðu 1-0 gestunum í vil og hafa þær því unnið tvo fyrstu leiki sína Pepsídeildinni ú sumar, nokkuð sem kemur á óvart í ljósi þess að þær fóru stigalausar í gegnum deildarbikarinn.


Slapp
banner