Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   sun 20. maí 2012 09:00
Daníel Freyr Jónsson
Manchester United kaupir leikmann frá Crewe
Samkvæmt breskum fjölmiðlum hefur Manchester United fengið til sín miðjumanninn Nick Powell frá Crewe Alexandra.

Powell, sem er einungis 18 ára gamall, hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 55 deilarleiki með Crewe.

Hann braust inn í aðallið Crewe leiktíðina 2010-11, en það var á þessari leiktíð sem hann virkilega sló í gegn þar sem hann skoraði hann í heildina 15 mörk í 44 leikjum. Sir Alex Ferguson, stjóri United, sást á leikjum liðsins í vetur þar sem hann var talinn vera að fylgjast með kappanum.

Samkvæmt frétt Daily Mail greiðir United upphæð sem gæti numið fjórum milljónum punda, en heildarupphæðin veltur á frammistöðu og árángri leikmannsins.

Líklegt er að Powell verði lánaður strax aftur til liða í neðri deildum Englands, en samningurinn hefur ekki verið opinberaður vegna þáttöku Crewe í umspili um sæti í 1. deild.
Slapp
banner