Það ættu flestir að vera upplýstir um hvaða lið varð Evrópumeistari í kvöld, en Chelsea bar þá sigur úr býtum gegn þýska stórliðinu FC Bayern í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu sem fór fram á Allianz-Arena.
Með sigrinum tryggði Chelsea sér þátttökurétt í Meistaradeildina næsta haust, en það eru þó ekki allir jafn sáttir með það, enda endaði liðið í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og fékk því ekki sætið á eðlilegan máta.
Tottenham Hotspur endaði í fjórða sæti deildarinnar sem gefur sjálfkrafa sæti í þessa ágætu keppni, en nú er ljóst að liðið hefur misst sætið til Chelsea. England fær einungis úthlutuð fjögur sæti í Meistaradeildina ár hvert og því fer Chelsea á kostnað Tottenham.
Þetta var gert eftir keppnina árið 2005, en þá vann Liverpool lið AC Milan í úrslitum og fékk þátttökurétt haustið eftir þrátt fyrir að hafa lent í fimmta sæti deildarinnar. Engar reglur voru til um þetta þá og voru þær því gerðar í kjölfarið.
Það ár fóru reyndar fimm lið í Meistaradeildina, en þeim var síðar breytt, þannig að einungis fjögur lið fengu þátttökurétt.


