Heimild: Goal.com
Franz Beckenbauer, sem er oft kallaður ,,Þýski Keisarinn", var eðlilega svekktur eftir að lið hans FC Bayern tapaði fyrir Chelsea í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Beckenbauer, sem er einhver besti varnarmaður sem knattspyrnan hefur alið af sér, er heiðursforseti hjá Bayern þar sem hann lék árum áður og fylgdist með liði sínu vera grátlega nálægt því að fagna titlinum í kvöld.
Thomas Müller kom Bayern yfir þegar sjö mínútur voru eftir af leiknum, en Didier Drogba jafnaði metin rétt fyrir leikslok. Chelsea vann svo í vítaspyrnukeppni, en þar reyndust Petr Cech og Drogba, liðinu dýrmætir.
,,Af hverju er verið að kenna Englendingum um þegar að Bayern getur ekki nýtt sér eigin yfirburði?," sagði og spurði Beckenbauer.
,,Heppnin var hliðholl Chelsea í kvöld og þess vegna átti liðið skilið að verða Evrópumeistari, en engu að síður þá var Bayern mun betri aðilinn mestan hluta leiksins," sagði hann að lokum.



