Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 19. maí 2012 23:59
Brynjar Ingi Erluson
Umfjöllun: Pétur skoraði tvö er Grótta lagði KFR
Orri Axelsson skrifar frá Seltjarnarnesi
Pétur Theodór skoraði tvennu fyrir Gróttu
Pétur Theodór skoraði tvennu fyrir Gróttu
Mynd: Eyjólfur Garðarsson
Grótta 3 - 1 KFR
0-1 Lárus Viðar Stefánsson ('6 )
1-1 Jónmundur Grétarsson ('21, víti)
2-1 Pétur Theodór Árnason ('77 )
3-1 Pétur Theodór Árnason ('81 )

Það viðraði vel til knattspyrnuiðkunnar á Gróttuvelli í dag þegar KFR mætti í heimsókn á Seltjarnarnes. Rangeyingar eru nýliðar í 2. deildinni eftir að hafa komist upp í fyrra á meðan Gróttumenn féllu úr 1. deildinni.

Það var því búist við öruggum Gróttusigri en þegar upp var staðið veittu gestirnir Gróttumönnum mikla mótspyrnu í spennandi leik.

KFR byrjaði leikinn betur á meðan Gróttumenn virtust værukærir. Fyrsta markið leit dagsins ljós á 6. mínútu þegar Lárus Viðar Stefánsson, fyrirliði KFR, var mættur á nærstöng og skallaði inn fasta hornspyrnu Diego Marínez.

Í kjölfarið héldu gestirnir áfram að spila vel á meðan Gróttumenn voru áttaviltir og áttu erfitt með spil. Það lagaðist þó fljótt og Gróttumenn jöfnuðu metin á 21. mínútu.

Þá lék Sölvi Davíðsson á bakvörð KFR sem hrinti á bakið á honum og víti var dæmt. Jónmundur Grétarsson fór á punktinn og skoraði af öryggi.

Grótta var sterkari það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og áttu nokkur ágæt hálffæri. Rétt fyrir leikhlé bjargaði Maciej Majewski í marki KFR meistaralega frá Sölva sem náði góðu skoti í teignum eftir laglegt spil Gróttu.

Síðari hálfleikur byrjaði rólega og fátt var um fína drætti hjá liðunum. Gróttumenn voru meira með boltann en áttu í erfiðleikum með að komast í færi á meðan KFR beitti ógnarhröðum skyndisóknum.

Gestirnir voru nálægt því að taka forystuna um miðjan hálfleikinn þegar sóknarmaður þeirra skaut föstu skoti rétt fyrir framan markið en Jón Kolbeinn Guðjónsson varði stórkostlega í marki Gróttu.

Á 77. mínútu komust Gróttumenn yfir þegar Jónmundur gaf góða sendingu á Enric Má Du Teitsson sem brunaði inn í teiginn og skaut föstu skoti á markið. Majewski náði ekki að halda boltanum og hinn 16 ára Pétur Theodór Árnason var réttur maður á réttum stað og fylgdi vel á eftir.

Gróttumenn tóku öll völd á vellinum eftir markið og fjórum mínútum síðar kláruðu þeir leikinn með þriðja markinu. Þá tók Enric hornuspyrnu sem Pétur Theodór skallaði laglega í markið, frábær innoma hjá framherjanum efnilega.

KFR reyndu að sækja undir lokin en höfðu ekki erindi sem erfiði og Gróttumenn fóru með sigur af hólmi.
Slapp
banner