Heimild: Sky
Gary Cahill, leikmaður Chelsea á Englandi var ánægður er lið hans varð Evrópumeistari eftir sigur á FC Bayern í gær.
Gary Cahill kom til Chelsea frá Bolton í janúar, en fékk lítið að spila fyrst um sinn. Hann spilaði allan leikinn í dag er Chelsea bar sigur úr býtum gegn Bayern í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.
,,Þetta er ótrúlegt. Ég get ekki einu sinni lýst þessu í orðum. Ég kom hingað til þess að fagna titlum og hef þegar fagnað tveim á innan við sex mánuðum, það er ótrúlegt," sagði Cahill.
Cahill lék 18 leiki með Chelsea á þessu tímabili og skoraði tvö mörk, en hann er einnig í enska landsliðhópnum sem fer á Evrópumótið í sumar.



