Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   sun 20. maí 2012 10:30
Brynjar Ingi Erluson
Noregur: Arnór Sveinn og Kristján Örn í sigurliði Hönefoss
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Hönefoss 1 - 0 Vålerenga
1-0 Mats Andre-Kaland ('68 )

Hönefoss lagði Vålerenga að velli með einu marki gegn engu í norsku úrvalsdeildinni í gær.

Mats Andre-Kaland skoraði eina mark leiksins fyrir heimamenn í Hönefoss á 68. mínútu leiksins.

Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Kristján Örn Sigurðsson léku allan leikinn í vörninni hjá Hönefoss, sem situr í fimmta sæti deildarinnar með 16 stig, en Veigar Páll Gunnarsson fékk ekki að spreyta sig af bekknum í liði Vålerenga sem er í áttunda sæti með 13 stig.
Slapp
banner
banner