Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   sun 20. maí 2012 11:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Belhanda gæti farið frá Montpellier í sumar
Younes Belhanda, leikmaður Montpellier í Frakklandi, gæti yfirgefið félagið í sumar, en hann er einn eftirsóttasti bitinn á markaðnum.

Montpellier þarf eitt stig til þess að landa franska deildartitlinum, en liðið hefur átt ótrúlegt tímabil, þar sem Belhanda og Olivier Giroud hafa reynst liðinu afar dýrmætir.

Belhanda, sem er 22 ára gamall vængmaður hefur verið einn mest spennandi leikmaður frönsku deildarinnar í ár, en hann hefur leikið 28 deildarleiki og skorað 13 mörk og þá hefur hann lagt upp sex mörk.

Hann hefur verið orðaður við stærstu félög Evrópu undanfarið, en þar má nefna Arsenal, Inter Milan og Manchester City. Leikmaður segir að markmið sitt sé að vinna frönsku deildina með Montpellier og eftir það verður framtíð hans rædd.

,,Ég er ánægður, en framtíð mín liggur í því að hjálpa Montpellier að vinna frönsku deildina. Eftir tímabilið þá munum við setjast niður með forseta félagsins og ákveða hvað við gerum," sagði Belhanda.
Slapp
banner
banner
banner