Heimild: Sky
Peter Coates, formaður Stoke City í ensku úrvalsdeildinni, segir að Tony Pulis, stjóri liðsins gæti haft áhuga á því að fá Michael Owen frá Manchester United.
Owen, sem er 32 ára gamall yfirgefur Manchester United í sumar, en samningur hans rennur þá út.
Hann kom til Man Utd fyrir þremur árum síðan frá Newcastle á frjálsri sölu og það lítur út fyrir að sama verði upp á teningnum í sumar.
Owen hefur sjálfað hafnað því að ganga til liðs við lið í ensku fyrstu deildinni og vill hann ólmur vera áfram í deild þeirra bestu.
,,Tony er frá þessa stundina, en við munum ræða þetta við hann þegar hann kemur aftur þar sem hann hefur áður haft áhuga á Owen," sagði Coates.
,,Michael er frábær knattspyrnumaður og ég sé alveg af hverju Tony hefur haft áhuga á honum, en þetta er allt undir honum og stjórninni komið," sagði hann að lokum.




