Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Alvaran hefst í haust
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
banner
   sun 20. maí 2012 18:58
Arnar Daði Arnarsson
Magnús Gylfason: Einstaklings mistök hjá okkur í hverjum leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það var stefnt á fyrsta sigurinn í dag, en hann kom ekki og það eru gríðarleg vonbrigði," sagði Magnús Gylfason þjálfari ÍBV eftir 1-1 jafntefli Eyjamanna gegn Fylki í Eyjum í dag. Eftir fjórar umferðir eru ÍBV með einungis tvo stig.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  1 Fylkir

ÍBV sóttu með gríðarlegum vindi í fyrri hálfleik og þar af leiðandi á móti vindi í þeim seinni, þeir náðu mun meiri tök á boltanum í seinni hálfleik og voru líklegri aðilinn í seinni hálfleik,

,,Mér fannst við vera betri aðilinn, bæði í fyrri og seinni hálfleik, það var erfiðara að spila boltanum og skapa sér færi í fyrri hálfleik en seinni í hálfleik, þrátt fyrir mikið rok, þá spiluðum við þokkalega og sköpuðum fullt af færum en náðum því miður ekki að klára þau og það vantar herslumuninn ennþá og meðan það kemur ekki, þá vinnum við ekki leiki."

,,Þeir pökkuðu mönnum fyrir utan teiginn, þannig við vorum ekki að fá skot séns-a, en við skorum þó úr einu skoti fyrir utan teig en gáfum þeim síðan ódýrt mark uppúr hornspyrnu, einn bolti inn á miðjan vítateig og þar kemur óvaldaður maður og skallar boltann í netið, það er það sem svekkir mig mest í dag. Einstaklings mistök hjá okkur í hverjum einasta leik," sagði Magnús.

Meiðslalisti Eyjamanna hélt áfram að stækka í leiknum í dag, bæði Tonny Mawejje og Rasmus Steenberg Christiansen þurftu að fara upp á sjúkrahús í miðjum leik vegna meiðsla.

Viðtalið í heild sinni við Magnús Gylfason er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner