Heimild: The Independent Ipswich Town
Björn Bergmann Sigurðarson, leikmaður Lilleström í Noregi, er einn eftirsóttasti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir, en það voru fjölmörg lið að fylgjast með honum í dag.
Björn skoraði sigurmark Lilleström gegn Sogndal, en það kom undir lok leiksins og reyndist það vera hans ellefta mark í jafnmörgum leikjum. Hann hefur því skorað sjö mörk í deildinni og fjögur í bikarnum.
Eins og við greindum frá fyrr í dag þá lítur út fyrir að Wolves í ensku fyrstu deildinni ætli að bjóða 3 milljónir punda í Björn, en þá voru einnig útsendarar frá FC Bayern, Aston Villa og Genk á leik Lilleström í síðustu viku.
Í dag er þá sagt að alla vega þrír útsendarar hafi verið á svæðinu að fylgjast með Birni, en þeir voru frá Ipswich Town, Anderlecht og síðast en ekki síst, Everton. Þau lið fara því í hóp með mörgum öðrum, en hann hefur einnig verið orðaður við stórlið á borð við AC Milan og Juventus.

